Norðurperlur Skandinavíu

Þórhallur Heimisson
skrifar um perlur norðursins „Norðurkolluna“ eins og faðir hans Heimir Steinsson kallaði svæðið.

„Norðurkollan“ gervigreindin teiknað þessa mynd með minni hjálp 🙂
Það má með sanni segja að Skandinavía hafi snemma orðið mitt annað heimaland. Ég hef búið ein 20 ár ævinnar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, ferðast ótal sinnum um Finnland og Álandseyjar og dvalið þar löngum stundum. Enda þykir mér ákaflega vænt um þessi lönd öll.

 

Norðurkolla!

Einna fallegasti og magnaðasti hluti Skandinavíu er að mínu mati það landsvæði sem Svíar og Norðmenn kalla Nordkalotten. Faðir minn, Heimir Steinsson, ferðaðist oft með hópa um þetta svæði og íslenskaði hann heiti þess sem „Norðurkolla“. Norðurkolla er svæðið þar sem nyrstu hlutar Noregs, Svíþjóðar og Finnlands mætast. Þetta er land víðáttunnar, mikilla andstæðna og stórbrotinnar náttúru. Hér hafa ísaldarjöklar mótað landslagið og lífið um aldir snúist um náin tengsl manns og umhverfis .

Elgur í Svíþjóð.

Svæðið á sér langa og merka sögu. Þar hafa Samar, frumbyggjar norðursins, búið frá örófi alda. Menning þeirra, tungumál og hefðir ná yfir landamæri allra þriggja ríkjanna og eiga sterkar rætur í hreindýrahaldi, veiðum og árstíðabundnum flutningum. Nokkurra vikna bein útsending sænska sjónvarpsins á hverju vori af ferðalagi elgsins til sumarbeitar segir sitt um áhuga almennings á þessum hefðum og sögu. Norðurkollan er því ekki aðeins landfræðilegt svæði heldur einnig sögulegt menningarsvæði sem sameinar ólík samfélög.

Miðnætursólin Nordkapp.

 Náttúra Norðurkollu er einstök. Víðáttumiklir barrskógar, þúsundir vatna, stórfljót, fjallgarðar og djúpir norskir firðir einkenna landslagið. Á sumrin lýsir miðnætursólin upp norðurslóðirnar og sest ekki norðan heimskautsbaugs. Í 307 metra hæð er Nordkapp í Norður-Noregi vinsæll áfangastaður til að upplifa birtuna. En Norðurkolla er einmitt öll fyrir norðan bauginn. Birtan, kyrrðin og víðáttan skapa einstaka stemningu sem erfitt er að finna annars staðar í Evrópu. Nema á Íslandi auðvitað.

Um aldir lágu hér mikilvægar verslunarleiðir milli Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Rússlands. Fólk flutti milli svæða með hreindýrahjörðum sínum, verslaði yfir landamæri og blandaði saman tungumálum og menningarhefðum. Landamæri ríkjanna voru lengi óljós en tóku smám saman á sig þá mynd sem við þekkjum í dag. Öll þrjú ríkin mætast við landamærastikuna Treriksröset og er hægt að komast að henni gangandi.

Hreindýr og samískt tjald.

Á 20. öldinni varð svæðið einnig mikilvægt í hernaðarlegu tilliti. Í síðari heimsstyrjöldinni var barist af hörku í Norður-Noregi og Finnlandi. Nálægðin við Sovétríkin gerði svæðið síðan að mikilvægu landamærasvæði í kalda stríðinu. Það sama á við enn í dag.

Það eru margir fallegir bæir sem prýða Norðurkollu. Luleå við Botníuflóa hefur lengi verið mikilvæg hafnar- og iðnaðarborg Norður-Svíþjóðar. Þaðan liggja sögulegar samgönguleiðir inn í Lappland og norður til járngrýtisnámanna sem gerðu Svíþjóð að heimsveldi á 17. öldinni. Og eru enn gríðarlega mikilvægar. Í Rovaniemi, við heimskautsbauginn, mætast finnsk náttúra, menning og saga Lapplands. Skógar, stórfljót og þúsundir vatna einkenna víðfeðmt landsvæðið þar í kring. Skammt undan í Jukkasjärvi er hið þekkta Icehotel sem dregur ferðamenn víða að yfir veturinn. Kirkenes stendur við Barentshaf, nærri landamærum Rússlands, og er einstakt dæmi um menningarleg og söguleg tengsl austurs og vesturs. Þaðan liggur norska strandlengjan með djúpum fjörðum og hrikalegum fjöllum til Tromsø, sem varð snemma mikilvæg miðstöð heimskautakönnunar og norðurslóðarannsókna.

Tromsö.

Sú strandlengja er sannarlega kóróna norðursins. Í Kiruna í Svíþjóð hefur járngrýtið mótað bæði atvinnulíf og byggð. Borgin var stofnuð í tengslum við námuvinnsluna um aldamótin 1900 og er nú að ganga í gegnum einstæða umbreytingu þar sem stór hluti hennar hefur verið fluttur vegna námanna.

Svona mætti lengi telja. Nordkalotten eða Norðurkolla, er einstakt svæði þar sem saga jarðarinnar, menning frumbyggja, iðnvæðing, stríðssaga og stórbrotin náttúra fléttast saman. Á sumrin bætist við töfrandi birta miðnætursólarinnar, þegar dagur og nótt renna saman, náttúran sýnir sína fegurstu hlið og hreindýrahjarðirnar þvera landamæri.

En fallegust finnst mér Norðurkollan í vetrarmyrkrinu þegar dagurinn er ekkert annað en stutt, grá skíma, frostið fellur niður fyrir 30 mínusgráður og norðurljósin dansa. Þá er maður sannarlega staddur í ríki Dofrans.
Íshótelið Jukkasjärvi.

Havaí (Hawaii) – land hafs og elda

Þórhallur Heimisson
skrifar um Havaí.

Flestir sem hugsa um Havaí án þess að hafa komið þangað, sjá án efa fyrir sér blátt Kyrrahafið, pálmatré sem hreyfast í hlýjum vindinum, eldfjöll, fólk með blómakransa um hálsinn og í strápilsum að dansa Hulu.

Allt á þetta við um eyjuna Havaí. En undir hinni fallegu mynd er saga sem er miklu margbreytilegri en flestir ferðamenn gera sér grein fyrir. Havaí er eyjaklasi langt úti í norðurhluta Kyrrahafsins og eitt af 50 ríkjum Bandaríkjanna. Eyjarnar eru einangraðar frá öðrum löndum og meginlöndum, og einmitt þessi einangrun hefur mótað bæði náttúruna og fólkið.

Eyjaklasinn samanstendur af átta megin eyjum, þar sem Havaí eyja, einnig kölluð Big Island, er stærst. Þar eru meðal annars að finna eyjarnar Hilo og Kailua-Kona. Aðrar þekktar eyjar eru Oʻahu, Maui, Kauaʻi, Molokaʻi og Lānaʻi.

Allt eru þetta eldfjallaeyjar. Eldfjöll hafa byggt eyjarnar upp á milljónum ára og eru enn mjög virk. Á Big Island eru meðal annars Kīlauea og Mauna Loa, tvö af virkustu eldfjöllum heims. 

Kilauea.

Löngu áður en evrópskir landkönnuðir komu til Havaí sigldu þangað pólýnesískir sæfarar, þúsundir kílómetra yfir Kyrrahafið, í tvíbytnum. Þeir höfðu engin nútíma siglingatæki. Þeir notuðu sólina, stjörnurnar, hafstrauma, vindinn og jafnvel flug fuglanna til að rata. Talið er að landnám Havaí hafi átt sér stað um 1000–1200 eftir Krist. Þetta fólk kom ekki tómhent til eyjanna. Það flutti með sér svín, hunda, hænur, sætar kartöflur, banana, kókoshnetur og sykurreyr – plöntur og dýr sem urðu grundvöllur lífsins á eyjunum. 

Árið 1778 kom breski landkönnuðurinn James Cook til Havaí og varð fyrsti Evrópumaðurinn sem vitað er um að hafi komið þangað. Hann kallaði þær Sandwich Islands. Árið eftir lést hann við Kealakekua Bay á Big Island. Á þessum tíma voru eyjarnar ekki eitt ríki. En einn maður átti eftir að breyta því. Það var Kamehameha sem kallaður er „Hinn mikli“. Eftir margra ára átök tókst honum að sameina eyjarnar undir einni stjórn árið 1810. Þannig varð til konungsríki Havaí. Svo komu trúboðar og nýir sjúkdómar námu land, vesturveldin sóttu að og sykurframleiðsla breytti efnahagskerfinu. Að lokum var konungsveldinu steypt af stóli árið 1893. Havaí var innlimað í Bandaríkin 1898 og árið 1959 varð Havaí 50. ríki Bandaríkjanna.

Havaí tengist líka á dramatískan hátt sögu Síðari heimsstyrjaldarinnar. Snemma morguns sunnudaginn 7. desember 1941 réðust um 350 japanskar flugvélar á bandarískar herstöðvar á Oʻahu. Aðalmarkmiðið var bandaríski Kyrrahafsflotinn sem hafði mikilvæga aðstöðu í Pearl Harbor. Árásin stóð í um tvær klukkustundir.

Japanir sökktu eða skemmdu fjölda bandarískra herskipa, þar á meðal orrustuskipin USS Arizona, USS Oklahoma og USS West Virginia. Um 2.400 Bandaríkjamenn létust og rúmlega 1.100 særðust. Það sem gerði árásina sérstaklega miskunnarlausa var að hún var gerð án formlegrar stríðsyfirlýsingar. Bandaríkjamenn voru því teknir að miklu leyti óundirbúnir. USS Arizona varð tákn árásarinnar. Skipið varð fyrir sprengju sem olli gífurlegri sprengingu í skotfærageymslum þess. 1.177 sjómenn og landgönguliðar létust um borð. Flak Arizona liggur enn á botni hafnarinnar og yfir því stendur “USS Arizona Memorial”. Olía lekur úr flakinu og hefur stundum verið kölluð „tears of the Arizona“ – tár Arizona.

Arizona Memorial, Pearl Harbor.

Daginn eftir, 8. desember 1941, lýstu Bandaríkin yfir stríði á hendur Japan. Nokkrum dögum síðar lýstu Þýskaland og Ítalía yfir stríði á hendur Bandaríkjunum. Þar með voru Bandaríkin komin inn í síðari heimsstyrjöldina. Það breytti gangi stríðsins. Bandaríkin gátu framleitt gríðarlegt magn herskipa, flugvéla, skriðdreka og annars hergagnabúnaðar. Að lokum tóku þau þátt í stríðinu bæði í Evrópu og Kyrrahafi. Í dag er Pearl Harbor eitt mikilvægasta sögulega minnismerki Bandaríkjanna. 

Svo við snúum okkur að náttúru Havaí, þá er hún næstum óraunveruleg. Eiginlega eins og Ísland en samt allt öðruvísi. Á einum degi getur maður upplifað svartar hraunbreiður, græna regnskóga, fossandi fjallshlíðar, hvítar sandstrendur og djúpblátt hafið. Á Big Island er hægt að fara í eldfjalla þjóðgarð Havaí, þar sem eldfjöllin Kīlauea og Mauna Loa móta landslagið. Þar finnur maður gíga, hraunbreiður, gufusvæði, regnskóga og strendur. Þjóðgarðurinn nær upp í um 4.170 metra hæð og er bæði verndarsvæði fyrir lífríkið og á heimsminjaskrá UNESCO.  

Ekki er hægt að segja frá Havaí án þess að tala um heimamenn.  Ég ætla að nefna nokkur dæmi. Aloha er auðvitað eitt þekktasta orð Havaí. Aloha er meira en bara kveðja. Það tengist hlýju, virðingu og vináttu og lýsir samfélaginu á Havaí vel. Hula-dansinn sem eyjarnar eru frægar fyrir er ekki bara skemmtun fyrir ferðamenn. Hann er hluti af menningarhefð þar sem sögur, náttúra og trú eru tjáð með hreyfingu, tónlist og söng. Og maturinn segir líka sína sögu. Taró, ferskur fiskur, ávextir, grænmeti og áhrif frá ólíkum menningarheimum sem hafa komið til eyjanna hafa skapað matarmenningu sem er ótrúlega fjölbreytt.

Oahu eyja.
Þannig er Havaí, náttúra, saga, mannlíf, ævintýri. Havaí er ekki bara áfangastaður sem maður heimsækir. Það er staður sem maður tekur með sér heim.

SÍLE (Chile) – Í austri rísa Andesfjöllin og í vestri liggur Kyrrahafið

Þórhallur Heimisson skrifar um Síle.

Myndin efst á síðunni er frá Torre del paine.

Einhver eftirminnilegasta flugferð sem ég hef farið í var frá Buenos Aires í Argentínu til Santíagó í Síle. Það var heiðskírt og Andesfjöllin blöstu við megnið af leiðinni með sinni stórkostlegu fegurð. Þess vegna er það að þegar ég hugsa um Síle sé ég fyrst fyrir mér risavaxin Andesfjöll. En svo líka Kyrrahafið, eyðimerkurnar í norðri, jökla og firði í suðri – og á milli alls þessa fólk sem hefur skapað sér líf í einu lengsta og mjósta landi heims.
Atacama eyðimörkin.

Landið er rúmlega 4.000 kílómetra langt frá norðri til suðurs en sums staðar aðeins um 150 – 200 km. breitt og þar búa um 20.000.000. Í austri rísa Andesfjöllin og í vestri liggur Kyrrahafið. Þessi óvenjulega lega hefur mótað allt; loftslagið, atvinnulífið, byggðirnar og jafnvel hugarfar fólksins.

Norðurhluti Síle er eitt þurrasta svæði jarðar. Þar er Atacama-eyðimörkin, ótrúlegt landslag þar sem sum svæði fá nánast enga úrkomu árum saman. Þar er að finna eldfjöll og víðáttumiklar eyðimerkur sem minna stundum meira á yfirborð annarrar plánetu en venjulegt landslag á jörðinni. Þegar ferðast er suður breytist allt. Loftslagið verður mildara, gróðurinn meiri og landslagið grænna.

Lengst í suðri tekur Patagónía við með fjöllum, jöklum, vötnum og djúpum fjörðum. Patagónía er ævintýraveröld sem lítur engan ósnortinn. Alla vega ekki mig. Patagóníujökullinn (Campo de Hielo Patagónico Sur) er þriðja stærsta jökulbreiða jarðarinnar og jafnframt þriðja stærsta ferskvatnsforðabúr plánetunnar, á eftir ísbreiðum Suðurskautslandsins og Grænlands. Jökulbreiðan teygir sig með fram Andesfjöllunum á landamærum Síle og Argentínu. Þar er að finna marga frægs jökla, til dæmis Uppsaljökulinn sem heitir eftir minni heimaborg. 

Uppsala jökullinn.
Flestir ferðamenn byrja ferðina eins og ég gerði fyrst þegar ég kom til Síle, í Santiago, höfuðborginni. Borgin liggur í dal milli Andesfjalla og strandfjallanna og á góðum degi eru snævi þakin fjöllin eins og risavaxinn bakgrunnur borgarinnar.
Santiago er nútímaleg stórborg en á sama tíma má finna þar sterka tengingu við sögu landsins. Þar er að finna hæstu bygginguna í Suður-Ameríku, Gran Torre Santiago. Turninn er 300 metra hár og telur 62 hæðir ofanjarðar. Útsýnið er magnað og að horfa á sólina setjast úr turninum er engu líkt.
Gran Torre Santiago.
Á götum miðborgarinnar mætist nýi og gamli tími. Kaffihús, veitingastaðir og verslanir standa við hlið sögulegra bygginga og torga. Stærstu hluti Sílebúa eru kaþólskir og höfuðkirkja kaþólsku kirkjunnar er Catedral Metropolitana de Santiago, sem stendur við torgið Plaza Armas í miðbæ Santiago.
Santiago liggur um 120 kílómetra inni í landi en við ströndina er hafnarborg hennar Valparaiso sem er falleg borg við við Kyrrahafið, byggð í bröttum hlíðum með útsýni yfir hafið. Litrík hús, götulist og gömlu kláfferjurnar gefa borginni einstakan sjarma. Valparaiso var kölluð „nafli heimsins“ vegna þess að hún var á 19. öld ein mikilvægasta höfn Suður-Ameríku og lykiláfangastaður skipa sem sigldu milli Atlantshafs og Kyrrahafs áður en Panamaskurðurinn opnaði árið 1914. Valparaiso varð því eins konar hlið milli heimshluta – borg þar sem austrið og vestrið mættust.
Valparaiso.

Saga Síle er löng og flókin. Áður en Evrópumenn komu bjuggu þar fjölmargir frumbyggjahópar, meðal annars Mapuche-fólkið sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu landsins. Inkaríkið ríkti yfir hluta þess svæðis sem í dag heyrir undir Síle.

Á blómatíma sínum í lok 15. aldar og byrjun þeirrar 16. náði Inkaríkið yfir norður- og miðhluta Síle, allt suður að Maule-fljóti. Þar var útþensla Inka stöðvuð í blóðugum átökum við Mapuche-indíána.

Spánverjar komu á 16. öld og Síle varð hluti af spænska nýlenduveldinu. Sjálfstæðisbaráttan hófst í upphafi 19. aldar og landið varð sjálfstætt ríki árið 1818.

En saga nútíma-Síle er ekki síður merkileg. Árið 1970 varð Salvador Allende forseti og reyndi að koma á sósíalískum samfélagsumbótum eftir lýðræðislegri leið. Þann 11. september 1973 var ríkisstjórn hans steypt af stóli og hann myrtur  í valdaráni hersins undir forystu Augusto Pinochet.

Pinochet-stjórnin stóð í nærri 17 ár og einkenndist af einræði, mannréttindabrotum, fjöldamorðum og ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum. Á sama tíma voru gerðar miklar efnahagslegar breytingar sem áttu síðar eftir að hafa mikil áhrif á þróun landsins. Þegar maður ferðast um Síle er erfitt að horfa fram hjá þessari sögu sem enn hefur ekki verið gerð upp að fullu. Hún er enn hluti af samtalinu um þjóðina, stjórnmálin og sjálfsmynd fólksins.

Síle er eitt af merkustu vínlöndum heims og vínrækt á sér þar langa sögu. Í dölunum milli fjalla og Kyrrahafsins eru framleidd frábær vín, meðal annars Cabernet Sauvignon, Carmenère og Sauvignon Blanc. Maturinn ber líka sterk einkenni strandríkis. Fiskur og sjávarfang eru mikilvægur hluti matarmenningarinnar og empanadas, grillað kjöt og ýmsir pottréttir eru meðal þess sem ferðamaður ætti að prófa.

Já Síle er eins og landið við enda alheimsins. Svo eru það páskaeyjar – Rapa Nui – sem eru langt úti í Kyrrahafinu, hluti af Síle en samt heill heimur út af fyrir sig, með hinum frægu moai-steinstyttum og heillandi sögu. Ég segi frá þeim hér á öðrum stað.

Patagónía.
En eitt er víst. Ferð til Síle er ógleymanlegt ævintýri.

Páskaeyja – Staður sem sem vekur ferðalang til umhugsunar

Þórhallur Heimisson
skrifar um Páskaeyju.

Þið sem hafið lesið pistlana mína hér á vefnum vitið að ég er mikill sögunörd. En fátt heillar mig samt meira en stórbrotin náttúra jarðarinnar. Til eru slíkir staðir í heiminum sem maður heimsækir einungis vegna þess að þeir eru fallegir.

Svo eru til staðir sem maður fer til vegna þess að maður vill upplifa söguna. Páskaeyja, eða Rapa Nui eins og hún heitir á máli frumbyggja, er hvoru tveggja – en fyrst og fremst er eyjan staður sem vekur ferðalang til umhugsunar.

Ég hef alltaf heillast af stöðum þar sem saga, trú og mannlíf fléttast saman. Rapa Nui er einn af þeim stöðum. Hún er svo langt frá öðrum byggðum landsvæðum að þegar maður stendur þar og horfir út yfir Kyrrahafið er auðvelt að ímynda sér að maður sé kominn að enda heimsins.

Páskaeyja eða Rapu Nui, tilheyrir Síle en er um 3.700 kílómetra frá meginlandi Suður-Ameríku. Þar búa að staðaldri um 7.700 manns, þar á meðal fólk af Rapa Nui-frumbyggjaþjóðinni. Eyjan er þríhyrningslaga í laginu, tæplega 25 km löng og um 12 km breið þar sem hún er breiðust. Hæsta stóra eldfjallið á eyjunni heitir Terevaka og rís 507 metra yfir sjávarmál. Páskaeyja er einangruð eyja í bókstaflegri merkingu þess orðs og talin eitt af afskekktustu byggðu svæðum jarðar.

Frá tindi Terevaka.

Fyrir mörg hundruð árum komu þangað polynesískir sæfarar. Þeir höfðu hvorki kort né nútíma siglingatæki, en kunnu að lesa stjörnurnar, vindinn og hafið. Þeir sigldu í litlum bátum yfir þúsundir kílómetra af opnu hafi og fundu þessa litlu eldfjallaeyju.

Frá um 10. til 16. aldar reistu Rapa Nui-menn hundruð stórkostlegra steinstyttna á eyjunni, sem kallast Moai. UNESCO telur um 900 styttur vera á eyjunni, auk meira en 300 helgipalla, eða ahu. Pallarnir voru hannaðir sem traustir sökklar til að bera hinar risastóru styttur. Auk þess að vera einhverskonar altari voru pallarnir notaðir sem grafhýsi. Flestir pallarnir eru með fram ströndinni, oft nálægt ferskvatnslindum sem voru lífsnauðsynlegar fyrir samfélögin.

Hinar risastóru höggmyndir tengjast forfeðradýrkun og samfélagsgerð Rapa Nui-fólks. Þær eru hljóðar, dularfullar, alvarlegar og næstum mannlegar að sjá og minna á fyrri tíð.

Þegar fyrstu Evrópubúarnir komu til eyjarinnar stóðu margar stytturnar enn uppréttar. En rúmri öld síðar, um 1840, höfðu þær næstum allar verið felldar. Þessi eyðilegging var ekki af völdum náttúruhamfara, heldur manna. Deilt er um meðal fræðimanna hvað var þess valdandi.

Eldfjallið Rano Raraku.

Náttúra Páskaeyjar er ekki síður áhugaverð en sagan. Eyjan er mynduð úr eldfjöllum og landslagið er óvenjulegt: grænar hlíðar, hraun, eldgígar, hellar, klettar og endalaust Kyrrahafið. Eitt merkilegasta svæðið er Rano Raraku, eldgígur þar sem stór hluti Moai-styttanna var höggvinn út úr mjúku eldfjallagrjótinu.

Þar má enn sjá styttur sem virðast hálfunnar og sitja fastar í hlíðum eldfjallsins. Það er eins og höggvinn steinn hafi allt í einu verið yfirgefinn og handverksmennirnir horfið.

Styttur við Ahu Tongariki.

Annað stórkostlegt sjónarspil er Ahu Tongariki, þar sem fimmtán Moai standa saman við ströndina. Að sjá þær í morgunbirtu eða við sólsetur er upplifun sem ferðamaður gleymir aldrei. Og svo er Anakena-ströndin, með ljósum sandi og pálmatrjám. Þar verður Rapa Nui allt í einu ekki bara fornleifafræðilegur vettvangur heldur dásamleg, suðræn Kyrrahafseyja.

Anakena ströndin.

En Rapa Nui er meira en „ráðgáta“. Þarna bjó og býr raunverulegt fólk með fjölskyldur, trú, stjórnskipan, list, tungumál og hefðir. Saga heimamanna er sársaukafull. Evrópumenn komu fyrst til eyjarinnar árið 1722, þegar hollenski sæfarinn Jacob Roggeveen sigldi þar að á páskadag – og þaðan kemur nafnið Páskaeyja. Á 19. öld urðu íbúarnir síðan fyrir hræðilegum afleiðingum þrælaveiða, sjúkdóma sem Evrópubúar báru með sér og nýlendustefnu. Í dag er Rapa Nui-fólkið hins vegar ekki bugað. Þvert á móti er mikil vakning meðal þeirra sem endurspeglast í menningu, tungumáli, dansi, tónlist og sjálfsmynd heimamanna.

Já, að sækja heim Rapu Nui eða Páskaeyju er einstakt ævintýri. Þar liggur leyndardómur sögunnar yfir og allt um kring, einstök náttúra og lifandi samfélag sem ber arfleifð forfeðra sinna fram á veginn. Og þar finnur ferðalangur hversu lítill hann er í alheiminum og hversu stórkostleg perla jörðin okkar allra er

Söguferðir – Sagan fær andlit, raddir og umhverfi

Þórhallur Heimisson
skrifar um söguferðir.

Myndin að ofan:
Keops pýramídinn Egyptalandi.

Það er sérstök tilfinning að standa á stað þar sem sagan gerðist. Að lesa um atburð í bók er eitt, en að ganga um sömu götur og menn gengu fyrir hundruðum eða þúsundum ára er allt annað. Þá verður sagan lifandi. Hún fær andlit, raddir og umhverfi.

Kannski er það þess vegna sem ég hef um árabil haft þá ánægju að ferðast með hópa um staði þar sem saga heimsins var mótuð.

Á undanförnum árum hef ég leitt hópa til Rómar, Napólí og Flórens á Ítalíu, til Egyptalands, Grikklands, Tyrklands, Ísraels, Indlands, Nepals og Bútans, auk ferða á slóðir innrásarinnar í Normandí og um Þýskaland þar sem saga uppgangs og falls þriðja ríkisins birtist á áhrifamikinn hátt. Þessar ferðir eru ólíkar að efni en eiga það sameiginlegt að þær hjálpa okkur að skilja betur fortíðina – og þar með samtímann.

Lágmynd af eyðingu musterisins í Jerúsalem. Títusarboginn í Róm.

Róm er einstök borg þar sem saga Rómaveldis og kristninnar mætast á hverju götuhorni. Þar verður auðvelt að skilja hvernig lög, stjórnskipan og trúarhefðir sem mótuðu Evrópu urðu til. Flórens tekur síðan við sem vagga endurreisnarinnar, þar sem list, vísindi og ný hugsun breyttu heimsmynd Vesturlanda. Í Napolí, Pompey og á Caprí lifnar sagan við á einstakan hátt.

Í Grikklandi kynnumst við rótum lýðræðis, heimspeki og ólympísku leikanna. Þar gengur maður um sömu slóðir og Sókrates, Platón og Aristóteles lögðu grunn að hugmyndum sem enn hafa áhrif á samfélög okkar. Egyptaland flytur okkur enn lengra aftur í tímann. Við pýramídana og hofin við Níl verður ljóst hversu þróuð fyrstu stórveldi mannkynsins voru og hvernig þau mótuðu sögu Miðjarðarhafsins.

Efesus.

Í Tyrklandi mætast heimsveldi og trúarbrögð. Þar eru rætur Býsansríkisins, Ottómanveldisins og Opinberunarbókarinnar. Á ferð um þessi svæði verður Nýja testamentið lifandi þegar komið er til Efesus, Smyrnu eða annarra staða sem tengjast sögu frumkirkjunnar.

Í Ísrael er sagan nánast áþreifanleg. Þar eru sögusvið Gamla og Nýja testamentisins, borgir og landslag sem hafa mótað trú og menningu milljarða manna, gyðinga, kristinna og múslima.

Indland opnar síðan glugga inn í allt annan heim. Þar mætast ótrúleg menningarleg fjölbreytni, forn trúarbrögð og stórbrotin saga. Nepal og Bútan bæta annarri vídd við. Við rætur Himalajafjalla verður auðvelt að skilja hvernig náttúra, trú og lífsspeki geta mótað samfélög á allt annan hátt en við eigum að venjast í Evrópu.

Bandaríski herkirkjugarðurinn Normandí.

Ferðirnar til Normandí vekja hins vegar allt aðrar tilfinningar. Á ströndum þar sem bandamenn stigu á land 6. júní 1944 ríkir djúp kyrrð. Þar má sjá grafreiti þar sem þúsundir ungra manna hvíla eftir að hafa lagt líf sitt í sölurnar fyrir frelsi Evrópu. Þegar maður stendur á Omaha-strönd verður ljóst að friður og lýðræði eru ekki sjálfsögð gæði heldur verðmæt arfleifð sem varðveita þarf.

Svipað gildir um ferðir um Þýskaland þar sem rakið er rís og fall þriðja ríkisins. Þar sjáum við hvernig öflug menningarþjóð gat á skömmum tíma orðið vettvangur einræðis, ofsókna og styrjaldar. Um leið sjáum við hvernig Þjóðverjar hafa tekist á við þessa erfiðu fortíð og byggt upp eitt öflugasta lýðræðissamfélag Evrópu.

Margir spyrja hvers vegna fólk velji slíkar ferðir. Svarið er einfalt. Söguferðir gera okkur víðsýnni. Þær sýna að saga er ekki aðeins ártöl og nöfn heldur saga raunverulegs fólks, ákvarðana þess, mistaka og afreka. Þær minna okkur á að menning, trú og stjórnmál verða best skilin þar sem þau urðu til.

Það sem gleður mig mest er að sjá hvernig þátttakendur upplifa staðina. Fólk sem hefur lesið um faraóa, Akrópólis, Rómaveldi, Biblíuna, Himalajafjöll eða síðari heimsstyrjöldina segir gjarnan að nú fyrst hafi sagan orðið lifandi. Þegar landslagið, minjarnar og frásagnirnar renna saman skapast skilningur sem engin bók getur að fullu miðlað.

Tígris hreiðrið í Bútan.
Söguferðir eru því miklu meira en hefðbundnar skoðunarferðir. Þær eru ferðalag inn í sameiginlegt minni mannkynsins. Þær minna okkur á hvaðan við komum, hjálpa okkur að skilja samtímann og hvetja okkur til að horfa með meiri auðmýkt og forvitni til framtíðar.

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.